Söngurinn ómar
Í Hafnarskóla höfum við það fyrir venju að safnast saman með vissu millibili og syngja. Í haust undirbjuggum við samsöngin á þann hátt að hver bekkur fékk að velja sér lag sem er sungið í þessum söngstundum okkar. Lögin sem valin voru eru m.a. Ó, María, mig langar heim, Nú er vetur úr bæ, Lukkutroll, Bahama og Manstu ekki eftir mér? Nú fer að líða að aðventunni og þá förum við að æfa jólalögin.


