Fréttir Grunnskóli
dagur gegn einelti 2012 í GH
dagur gegn einelti 2012 í GH
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Vinátta, virðing og góð samskipti

08.11.2012

Í tilefni af degi gegn einelti 8. nóvember mynduðu nemendur og starfsfólk skólans vinakeðju milli skólahúsanna og elstu nemendurnir teygðu sig einnig í áttina að FAS þangað sem þeir stefna á næstunni. Þegar keðjan var komin kölluðu nemendur vinátta, virðing og góð samskipt.

Síðustu daga hefur verið rætt um mikilvægi góðra samskipta við nemendur og lögð áhersla á hvað lítil atriði í samskiptum skipta miklu máli. Það að heilsa, þakka fyrir sig og brosa getur breytt heilmiklu og almenn kurteisi og virðing er lykill að góðum samskiptum, hjá öllum bæði fullorðnum og börnum. Nemendur voru sérstaklega beðnir að hugleiða hvað þeir, hver og einn, gætu gert til að öðrum þætti notalegt að vera nálægt þeim og er von okka að allir hugleiði það og reyni að gera notalegt í kringum sig.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica