Margir gangandi og hjólandi en of fáir spenntir
Slysavarnakonur á Hornafirði voru með umferðakönnun í samstarfi við Umferðastofu og Slysavarnafélagið Landsbjörg 18.október s.l.
Könnunin var gerð fyrir utan Hafnarskóla og Heppuskóla á tímabilinu 7.40 - 8.10. Könnun er gerð til þess að athuga aðbúnaði grunnskólabarna í bíl. Það er alveg ótrúlegt hvað við eigum enn langt í land með að nota öryggisbeltin og að foreldrar séu í belti en ekki börnin er óskiljanlegt. Af þeim 50 sem við skoðuðum voru 38 ökumenn með beltin spennt en 12 án beltis. 21 barn af 50 sátu í framsæti þar af eitt beltislaust. Þau börn sem sátu í aftursæti voru lang flest í viðeigandi öryggisbúnaði, en einn var laus aftur í.
Það sem kom okkur einna mest á óvart er hvað margir komu fyrir eigin afli það er, gangandi eða hjólandi í skólann, þeir sem voru á hjóli voru lang flestir með hjálm. Við slysavarnakonur skorum á alla foreldra að hleypa börnunum sínum ekki í út í umferðina nema með hjálm þegar þau eru á hjóli eða línuskautum, einnig viljum við minna á endurskinsmerki núna þegar svona dimmt er stóran hluta sólahringsins.
Við slysavarnakonur getum hvenær sem er verið með könnun, foreldrar látum því ekki nappa okkur án fullkomins öryggisbúnaðar bæði fyrir börnin okkar og okkur sjálf.
Með kveðju slysavarnakonur Hornafirði



