Fréttir Grunnskóli
Landsbyggdarvinir-001-a-vef GH 2012
Landsbyggdarvinir-001-a-vef GH 2012
Nemendur í 8. bekk ásamt kennurum skólastjóra og Hjalt Vignissyni bæjarstjóra

Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir

05.11.2012

Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir er heiti á verkefni sem kynnt var af Fríðu Völu Ásbjörnsdóttur fyrir nemendum í 7. - 10. bekk í dag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Landsbyggðarvini Reykjavíkur og nágrennist og miðar að því að efla heimabyggðina og nýta sköpunarkraft unga fólksins til þess.

Í kynningu á verkefninu segir m.a. ; "Verkefnið er ætlað grunnskólanemum á aldrinum 12-16 ára. Markmið  þess er að hvetja ungt fólk til að hugsa um heimabyggð sína og nærumhverfið, út frá þeim tækifærum, sem þar bjóðast, auk þess að vera um leið þroskandi og skemmtileg viðbót við hefðbundið skólanám.   Verkefnið miðar að því, að unga fólkið í landinu gaumgæfi málefni byggðar sinnar, velti fyrir sér framtíðarmöguleikunum og geri sér grein fyrir, hvað það geti lagt af mörkum. Allt í von um að það efli bjartsýni, bæti vellíðan og styrki sjálfsmynd fólksins og þar með framgang atvinnu- og menningarlífs á hverjum stað og samfélagsins í heild. Æskilegt er, að nemendur eigi gott samstarf við eldra fólk, t.d. afa og ömmur, þegar þeir fara að vinna verkefnið, auk þess að vera opnir fyrir, hvernig byggð og borg geta, með góðu samstarfi, bætt upp hvor aðra og eflst.
Í verkefninu gefst unga fólkinu tækifæri til að virkja hug og hönd, koma fram með hugmyndir sínar og fylgja þeim eftir á eigin forsendum. Lögð er áhersla á að tengja saman ólíka aðila, stuðla að sýnileika heimabyggðarinnar, greina það sem gott er, halda því á lofti og vera stoltur af!  "

Verkefnið er unnið í tveimur hlutum, ritgerð eða framsaga um það hvernig hægt væri að bæta heimabyggðina með því efla t.d. umhverfisvernd og síðan útfærsla á bestu hugmyndunum sem fram koma í samráði við aðila innan sveitarfélagsins. 



Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica