Dans, dans, dans
Í vikunni hefur staðið yfir danskennsla í grunnskólanum. Eins og undan farin ár er það Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sem kennir börnunum fótafimina.
Hjá nemendum í 1. – 7. bekk er dansinn skylda en val hjá eldri bekkingum. Föstudaginn 2. nóvember verður danssýning kl. 12:30 í íþróttahúsinu. Við alla til að mæta og sjá upprennandi danssnillinga sýna listir sínar.



