Ekki meir!
Mánudaginn 22. október kl. 16.30 – 18.00 verðu fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála Nýheimum. Það er Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem stendur fyrir þessu fræðsluerindi.
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, flytur erindið og byggir það á nýútkominni bók sinni, Ekki meir, sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.
Tilgangurinn með þessu fræðsluerindi er að vekja athygli á þessum málaflokki, opna betur augu fólks fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun.
Á erindinu verður Aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltis plakati og nýútkomnum siðareglum Æskulýðsvettvangsins sem fjalla annarsvegar um rekstur og ábyrgð og hinsvegar um samskipti.
Kolbrún Baldursdóttir mun flytja þennan fyrirlestur fyrir allt starfsfólk Grunnskólans fyrr um daginn.
Ekki meir - veggspjald! (pdf)



