Fréttir Grunnskóli
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2012
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2012
Arndís Ósk Magnúsdóttir lenti í 3ja sæti fyrir Sauðburður/lambaskjól í flokki Landbúnaðar (mynd.Marinó Thorlacius)
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Lentu í 3ja sæti í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda

15.10.2012

Afhending verðlauna fór fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda um helgina en keppnin var nú haldin í 21. sinn. Athöfnin fór fram í Háskólanum í Reykjavík.

Þau Arndís Ósk Magnúsdóttir og Jóel Ingason úr Grunnskóla Hornafjarðar lentu í 3ja sæti fyrir verk sín, Arndís fyrir  Sauðburður/lambaskjól í flokki Landbúnaðar og Jóel fyrir Vegur með götu
Samtals 40 þátttakendur víðsvegar af landinu til að taka þátt í vinnusmiðju NKG. Alls 14 þátttakendur fengu verðlaun og þar af voru 12 hugmyndir.  Í ár bárust 1.100 hugmyndir frá 32 grunnskólum.

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaun og flutti hátíðarræðu. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra flutti hvatningarræðu, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur hugmyndir sínar fyrir gestum, en JCI stóð fyrir framsögu þjálfun í vinnusmiðju keppninnar.

Tilgangur keppninnar er að efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og hvernig þroska megi hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir.
Farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri skóla
Farandbikarinn í flokki stærri skóla, fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni, hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ. Var þetta fjórða árið í röð sem Hofsstaðaskóli hlýtur bikarinn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica