Hugo Þórisson sálfræðingur á aðalfundi Foreldrafélags
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar verður haldinn fimmtudaginn 18. október n.k.
Á fundinum verður boðið upp á skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur með Hugo Þórissyni sálfræðingi um samskipti foreldra og barna.
Hugo hefur starfað að bættum samskiptum barna og foreldra í rúm 30 ár og hefur einstakan hæfileika í að koma þeim fróðleik frá sér á skemmtilegan hátt.
Á dagskrá fundarins auk venjulegra aðalfundarstarfa verður fyrirlestur Húgós.
Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður í matsal Hafnarskóla.
Stjórnin



