Umferðafræðsla í 2. bekk
Þessa dagana er 2. S að fræðast um umferðina og öryggi fótgangandi barna í umferðinni. Þátttaka í umferð er órjúfanlegur hluti þess að vaxa og þroskast. Mikilvægt er að börn tileinki sér sem fyrst réttar og viðeigandi reglur um hegðun í unferð til að tryggja sem best öryggi þeirra. Til að læra þessar reglur sem best fór bekkurinn út og æfði sig við merkta gangbraut.


