Afmælisráðstefna FAS og Nýheima
Vel heppnuð og vel sótt afmælisráðstefna Nýheima og FAS um mennta og menningamál var haldin í fyrirlestrasal Nýheima. Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar. Tvö ráðuneyti skrifuðu undir viljayfirlýsinguna annars vegar mennta og menningamálaráðuneytið og hins vegar atvinnu og nýsköpunarráðuneytið.
Sérstakir gestir ráðstefnunnar voru Katrín Jakobsdóttir, mennta og menningamálaráðherra og Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Einnig fluttu erindi Eyjólfur Guðmundsson Skólameistari FAS, Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.
Viljayfirlýsing undirrituð
Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og og Steingrímur J. Sigfússon, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, (fjarverandi) undirrituðu viljayfirlýsingu ásamt fulltrúum Nýheima. Vonast er til að viðræðum ljúki með skilmati til bæjarstjórnar Hornafjarðar og tilheyrandi ráðuneyta þann 1. desember nk. Það á meðal annars að gera stefnumótun og aðgerðaráætlun á eflingu þessara fjögurra greina. Einnig á að skoða hvernig efla megi list og verkgreinar, stuðla að sókn á sviði vistvænna orkugjafa og nýsköpunar á því sviði. Þá á að skoða sérstaklega hvernig á að stuðla að áframhaldandi þróttmiklu starfi á sviði ferðaþjónustu og matvælavinnslu.
Ráðstefnan var að öllu leiti mjög vel heppnuð fyrirlestrar voru mjög áhugverðir þar sem innihald erindanna leiddu að því, hvernig þróun menntunar hefur verið og mun verða. Hjalti greindi frá hversu mikilvægur félagslegur grunnur væri forsenda lífsgæða og mikilvægur til að efla og styrkja samfélagið. Þá greindi hann frá hve mikil gróska er í samfélaginu og samstarf þvert á greinar hefur skapað atvinnulífinu sérstöðu og ný störf sprottið fram i ýmsum greinum.
Eyjólfur kynnti starfi framhaldsskólans þar sem farið er út fyrir hefðbundnar kennsluaðferðir og nemendur fá meira frelsi til sköpunar og þátttöku í félagstarfi. Einnig kynnti hann nýjar leiðir sem skólinn er að fara í samvinnu við skóla sem hafa sömu aðstæður og eru hér í atvinnu og búsvæði. Þar mun kennslan miða að þeim aðstæðum og störfum sem skapast í þessum samfélögum.
Lærdómssamfélagið Hornafjörður
Ragnhildur kynnti lærdómssamfélagið Hornafjörð, þar sem unnið hefur verið að því að fá alla skóla í samfélaginu til að taka höndum saman og vinna að sameiginlegri sýn á grunnþætti menntunar. Markmiðið er að tengja þá við samfélagið á víðtækan hátt til að efla samstarf samfélagsins þvert á greinar og stuðla með því að betra mannlífi.
Katrín lýsti yfir ánægju sinni með þá kynningu sem hún fékk á því starfi sem hefur verið unnið í mennta og menningamálum hér á Hornafirði. Hún tók orð Jóns Sigurðssonar í munn og sagði að „sjálfstæði þjóðar byggir á menntun“ og óskaði hornfirðingum til hamingju með lærdómssamfélagið. Hún sagði menntastofnanir vera hreyfiaflið í samfélaginu og allir eigi að hafa tækifæri til menntunar. Nýheimar eru búnir að sanna sig og eru merki þess að grasrótin sé sterk og geti skapað slíkt samstarf á milli stofnanna og stjórnvöld eigi að taka við grasrótarstarfinu og nýta sér hugmyndirnar.
Jón Torfi lýsti yfir ánægju með lærdómssamfélagið og sagði þetta vera mest spennandi starf sem væri í þróun hér á landi í menntamálum. Það þyrfti að koma menntakerfinu úr hinni gömlu hugsun og koma með hagnýtari og skapandi greinar inn í menntakerfið. Hann telur að menntun sé ekki lengur grunnmenntun heldur ævimenntun og við eigum ekki að vera að hugsa of mikið um fortíðina heldur hvað erum við að gera í nútíðinni og efla hana.
Hornafjörður er að mörgu leiti á undan sinni samtíð hvað varðar menntun og þróun í hinu nýja lærdómssamfélagi Hornafjarðar. Menntun, menning, rannsóknir og nýsköpun eru einingar sem tengjast þvert á greinar hér á Hornafirði hefur tekist vel að tengja þessar greinar saman og efla með því atvinnu og menntun. Lífsgæði hér felast í hinu mikla félagstarfi þróun í menntamálum og hvatningu til almennings til að taka þátt í samfélaginu.
BB



