Beint í leiðarkerfi vefsins.
Aðalfundur foreldrafélagsins var haldinn fimmtudaginn 18. október síðastliðinn. Aðalefni fundarins var fyrirlestur hjá Hugo Þórissyni sálfræðing en síðan tóku við almenn fundarstörf. Góð mæting var á fundinn og góður rómur gerður að fyrirlestri Hugos. Fundargerð aðalfundarins má finna hér.
Lesa meira
Nemendur í útivistar- og útimatreiðsluvali lögðu land undir fót um daginn og skelltu sér austur í Hamarsfjörð.
Lesa meira
Mánudaginn 22. október kl. 16.30 – 18.00 verður fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála í Nýheimum. Það er Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem stendur fyrir þessu fræðsluerindi.
Lesa meiraMikil hátíðarhöld voru í 5. E þegar nemendur buðu foreldrum sínum í heimsókn til að skoða verk sem unnin voru í Trúarbragðafræði.
Krakkarnir voru búin að fræðast um Kristna trú, Búddatrú, Gyðingdóm, Hindúatrú og Islamstrú. Þau gerðu glærusýningu sem þau sýndu foreldrum.
Í gær hélt 6. H fyrstu vikuhátíð vetrarins. Umstangið var mikið eins og verður gjarna þegar hátíðirnar eru haldnar. Nemendurnir sömdu leikrit , dans og söngtexta og svo var æft í marga daga. Fyrstar á svið voru Stefanía og Konný en þær sýndu dans sem þær sömdu við lagið Starship. Oddleifur, Hafsteinn, Auðunn og Einar Karl sýndu töfrabrögð og til að tryggja að áhorfendur sæju sem best þá tóku þeir galdrana upp á myndband og sýndu á stóru tjaldi um leið og þeir framkvæmdu þá á sviðinu. Nokkrar stelpur í bekknum sömdu leikrit sem allir gátu fengið að taka þátt í.
Lesa meiraÞessa dagana er 2. S að fræðast um umferðina og öryggi fótgangandi barna í umferðinni. Þátttaka í umferð er órjúfanlegur hluti þess að vaxa og þroskast. Mikilvægt er að börn tileinki sér sem fyrst réttar og viðeigandi reglur um hegðun í unferð til að tryggja sem best öryggi þeirra.
Lesa meira
Vel heppnuð og vel sótt afmælisráðstefna Nýheima og FAS um mennta og menningamál var haldin í fyrirlestrasal Nýheima. Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar.
Lesa meira
Haustfagnaður var haldin s.l. fimmtudag í Sindrabæ þar sem nemendur í 8. – 10. bekk skemmtu sér saman. Nemendur í 9. bekk sjá um haustfagnaðinn og var ekkert til sparað hjá krökkunum þetta árið. Skemmtiatriði, skreytingar og tónlist voru eins og best verður á kosið og var ekki annað að sjá en að flestir skemmtu sér vel.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember