Kartöfluupptaka
Í dag fóru 5. bekkingar ásamt kennurum sínum í skólagarðana til að taka upp kartöflur en þar með kláruðu þau verkið því áður höfðu 2. – 4. bekkur farið og tekið upp sinn hluta. Í vor var skólanum úthlutað pláss í garðinum til kartöfluræktar. Ekki er hægt að segja að uppskeran hafi verið mikil en þó fengu allir smá í pokann sinn.


