7. bekkur fékk heimsókn frá Háskóla Íslands
Í síðustu viku fékk skólinn góða heimsókn þegar fulltrúar frá verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands komu til okkar.
Það voru þeir Ingi Rafn Ólafsson markaðs og kynningarstjóri sviðsin og Rúnar Unnþórsson lektor sem komu til að kynna sér hvernig staðið er að legóvinnunni hjá okkur og legókeppninni í 7. bekk.
Eins og flestir Hornfirðingar vita þá hefur lególiðunum okkar gengið vel í keppninni og í ár ætlum við að færa út kvíarnar. Í stað þess að velja eitt lið úr 7. bekk þá fá allir 7. bekkingar tækifæri til að fara í keppnina og njóta þess fjölbreytta náms sem undirbúningurinn krefst. Búið er að skrá 4 lið frá skólanum en staðfest hefur verið að keppnin verður 19. janúar í Reykjavík. Eins og áður sagði er stefnt að því að fara með alla nemendur í 7. bekk og vonandi næst góð samvinna við foreldra svo hægt verði að gera úr þessu góða keppnis- og menningarferð til höfuðborgarinnar.
Verkfræðideildin vill nota tækifærið og fá að kynna nemendum Vísindasmiðjuna sína, áhugi er á að þiggja boð frá 365 miðlum til að skoða starfsemi fyrir tækisins og fleira skemmtilegt er á döfinni í fyrirhugaðri ferð. Við erum stolt af þeim breytingum sem við höfum gert á legó vinnunni okkar í 7. bekk og stefnum að því að bjóða upp á enn frekari breytingar með tímanum. Við teljum okkur vera að vinna framsækið og metnaðarfullt starf sem samrýmist vel áherslum í nýrri aðalnámskrá og ætlum að halda því áfram. Heimsókn þeirra Inga Rafns og Rúnars er staðfesting á því.



