Fréttir Grunnskóli
Nemendaráð Heppuskóla
Nemendaráð Heppuskóla
Ester Lý, Guðný, Kristófer Daði, Kristján, Þorkell, Ingibjörg, Sigrún Birna og Guðrún Ása
Mynd 1 af 2
1 2

Nemendaráð Heppuskóla

14.09.2012

Síðustu daga hefur staðið yfir kosning í nemendaráð Heppuskóla og á hver árgangur tvo fulltrúa í ráðinu. Þau sem voru kosin eru: Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir og Guðný Árnadóttir úr 7. bekk, Ester Lý Pauladóttir og Kristófer Daði Kristjánsson úr 8. bekk, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir og Sigrún Birna Steinarsdóttir úr 9. bekk og Þorkell Ragnar Grétarsson og Kristján Vilhelm Gunnarsson úr 10. bekk. Þetta er glæsilegur hópur og óskum við þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru. Hlutverk nemendaráðs er m.a. að stuðla að góðum skólabrag, vera rödd nemenda í hagsmunamálum þeirra, halda utan um félagslíf nemenda í frímínútum og á skólatíma. Formaður nemendaráðs á sæti í Ungmennaráði á vegum sveitarfélagsins og tveir fulltrúar úr ráðinu sitja í skólaráði. Þetta nýskipaða nemendaráð ætlar að vinna af fullu krafti í allan vetur við að efla anda og félagslíf skólans. Fyrir hönd kennara ætlar Guðjón Örn Magnússon að vinna með ráðinu á þessu skólaári.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica