Berjaferð í Haukafell
Í dag fóru nemendur 1.-4. bekkjar í Haukafell en það er hefð fyrir því að yngstu bekkir skólans fari í berjaferð að hausti. Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við nemendur og starfsfólk í ferðinni en það var stafalogn og sólskin allan tíman eins og hægt er að sjá á myndunum sem fylgja. Í Haukafelli var hitað kakó, borðað nesti, tínd ber og farið í leiki. Nóg er af berjum þetta árið og voru börnin dugleg að tína berin og komu margir heim með slatta í dós til að færa fjölskyldunni. HKG



