Fréttir Grunnskóli
Gonguferd i Loni
Gonguferd i Loni
Rannveig, Guðbjörg Halldóra, Guðný, Elva, Þórdís, Díana, Wiktoria, Hekla Natalía, Kristján Örn, Björn Ómar og Gísli Valur
Mynd 1 af 2
1 2

Haustganga Grunnskóla Hornafjarðar.

29.08.2012

Í dag fóru 5.- 10. bekkur ásamt starfsfólki  í hina árlegu gönguferð skólans og eins og áður voru tvær leiðir í boði. Annarsvegar að ganga frá Stafafelli yfir í Hvannagil eða að ganga frá Raftagili að Hvannagili eftir veginum. Þessi háttur er hafður á svo að allir geti fundið sér gönguleið við hæfi og notið dagsins. Eins og við flest þekkjum þá er partur af góðri gönguferð að stoppa, borða nesti og njóta þess sem fyrir augu ber.  Það viðraði nokkuð vel, smá gustur en þegar komið var í Hvannagil var gott að stoppa í skjóli gilsins og busla smá áður en haldið var heim á leið. Á morgun fara 1. – 4. bekkur í Haukafell þar sem farið verður í göngutúr, týnd ber og leikið sér.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica