3. HS og himingeimurinn.
„Komdu og skoðaðu himingeiminn“ heitir verkefnið sem 3. bekkur hefur unnið að undanfarnar vikur. Í verkefninu er leitast við að láta börnin öðlast skilning og yfirsýn yfir alheiminn sem samþætt kerfi. Börnin lærðu um sólina og reikistjörnunar 8, fylgitungl, dvergreikistjörnur og áhrif sólarljóss á umhverfið. Að því loknu buðu börnin foreldrum sínum á sýningu í skólanum, þar sem þau kynntu himingeiminn í máli, myndum og með söng.



