Marsbúa cha cha cha
4. H hélt síðustu vikuhátíð vetrarins í Sindrabæ nú í byrjun maí. Krakkarnir voru með skemmtilega og fjölbreytta dagskrá en þar flutti Ingunn Ósk frumsamin ljóð, Sindri Blær las frumsamda örsögu, allir nemendur bekkjarins tóku þátt í leikriti sem heitir Greindarprófið, fluttir voru brandarar, stelpurnar sungu Eurovision lagið,sugið var hjólalag sem æft var í tónmennt , sýnd marsbúa-tískusýning og að lokum spiluðu marsbúarnir á hljóðfæri við lagið marsbúa cha cha cha.
HKG



