Heimsókn að Miðskeri
Miðvikudaginn 9.maí fór 2.bekkur að skoða svínabúið hjá Pálínu og Sævari á Miðskeri. Þar sáum við fullt af svínum og grísum af hinum ýmsu stærðum og gerðum.
Gyltan Gufa var nýbúin að gjóta 16 litlum og krúttlegum grísum og fengum við halda á nokkrum þeirra. Við skoðuðum líka lömb, hana, hænur og hesta og hoppuðum og skoppuðum á heyrúllunum úti á túni. Til að toppa þetta allt saman var, okkur til mikillar furðu, snjór í Nesjunum og því var líka hægt að dunda sér við að leika sér í snjónum og búa til risa snjóbolta. Sem sagt frábær ferð í alla staði, takk fyrir okkur J



