Listahátíð 5. M
Krakkarnir í 5. M hafa ekki setið auðum höndum í vetur . Fimmtudaginn 10. maí var foreldrum boðið að sjá afrakstur verkefna sem unnin hafa verið að í ýmsum greinum.
Nemendur kynntu samfélagsfræðiverkefnið frá Róm til Þingvalla bæði í máli og myndum. Margar persónur mannkynssögunnar stigu á stokk og mátti heyra fleygar setningar og atburði sem hafa haft áhrif á gang sögunnar. Það mátti því sjá Júlíus Sesar, Kleópötru, Ingólf Arnarson, Guðrúnu Ósvífursdóttur og fleira gott fólk spranga um ganga Hafnarskóla. Heilagar Patrekur og Atli Húnakonungur létu einnig í sér heyra og fóru mikinn, þó svo Patrekur væri á mun friðsamlegri nótum en konungur Húna.
Til sýnis voru myndir sem nemendur gerðu í tengslum við þemaverkefni um mynstur í stærðfræði ásamt verkefni í nýsköpun.
Endursýnt var leikritið Eigi fellur tré við fyrsta högg eftir nemendur í 5. M en það fjallar um hvernig hugarfarsbreyting og samábyrgð getur breitt framkomu við stúlku sem á undir högg að sækja. Leikritið var áður flutt á vikuhátíð í skólanum.
Síðast en ekki síst var gefin út ljóðabók með ljóð eftir nemendur en það er mörgum lagið innan þessa hóps að nota kveðskap sem túlkunarform. Þeir sem hafa áhuga á að eignast eintak geta haft samband við umboðsmann listahópsins á netfangið magnhildur@hornafjordur.is.
Þetta var því menningarviðburður með frumsömdu og flest listform voru nýtt í túlkun og tjáningu. Framtíðin er því björt hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar með þessa framtíðarlistamenn.



