Fréttir Grunnskóli
vikuhatid-5.M vor 2012
vikuhatid-5.M vor 2012
Spenntir áhorfendur á vikuhátíð hjá 5. M

Skólaráð og foreldrasamstarf

11.05.2012

 

Í gær var síðasti fundur skólaráðs á þessu skólaári en nýtt skólaráð verður kosið að hluta næsta haust. Hlutverk skólaráðs er mikilvægt því það kemur að öllum meiriháttar ákvörðunum innan skólans og er umsagnaraðili um skólastarfið almennt. Á skólasetningardögunum næsta haust verður haldinn almennur foreldrafundur með foreldrum nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar þar sem kosið verður í skólaráð og fjallað um foreldrasamstarf almennt. Á heimasíðu skólans má sjá fundargerðir skólaráðs http://www.rikivatnajokuls.is/grunnskoli/efni/foreldrar/rad/

Áhugi, ábyrgð og áhrif foreldra á skólastarf auk jákvæðrar viðhorfa til náms og skólagöngu getur skipt sköpum fyrir námsárangur og almenna velferð nemenda. Foreldrafélagið er grunnur að góðu samstarfi foreldra og góðu samstarfi foreldra og skóla. Rannsóknir sýna að samskipti foreldra og skóla hafa jákvæð áhrif á skólastarf. Ávinningur samstarfs er meðal annars:

Betri líðan barna í skólanum

Aukinn áhugi og bættur námsárangur

Aukið sjálfstraust nemenda

Betri ástundun og minna brottfall

Jákvæðara viðhorf foreldra og nemenda til skólans

Aukinn samtakamáttur foreldra í uppeldishlutverkinu

 http://www.heimiliogskoli.is/media/files/1198892159/Grunnskolinn.pdf

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica