Valhefti veturinn 2012-2013
Bæklingi fyrir valgreinar á næsta skólaári hefur verið dreift til nemenda í 7. – 10. bekk og kennir þar margra grasa og má með sanni segja að nemendur fá fjölbreytt val á næsta skólaári. Reynt er að hafa valið sem fjölbreyttast og þannig uppsett að það höfði til sem flestra og allir fái val við hæfi.
Nemendum í 9. og 10. bekk gefst færi á að vera í sex svokölluðum smiðjutímum á viku. Hver smiðja stendur í 8 – 9 vikur og komast nemendur því í fjórar smiðjur yfir veturinn. Í boði verða heimilisfræði þar sem boðið verður upp á eftirfarandi námskeið: Almenn matreiðsla, Úr ríki Vatnajökuls, Kökur/brauð/konfekt/ábætisréttir og Heilsuefling og heimilislegur matur. Leiklist þar sem boðið verður upp á námskeiðin: Trúðleikur, Einþáttungur, Leikhússport. Já ég er svo góð/ góður í að spinna leikrit og Götuleikhús. Myndlist þar sem boðið er upp á : Listasaga/ unnin með myndum, Leir, Grafík/þrykk/fjölfelldi og Skissuvinna. Smíðar þar sem boðið er upp á : Trésmíði, Glervinna, Málmsmíði og Hátæknival. Textílmennt þar sem boðið er upp á: Prjón/hekl/útsaumur, Skartgripagerð/þæfing, Fatabreytingar og Fatasaumur. Tölvur þar sem í boði verður Tímaritahönnun, Brúðu- og hreyfimyndagerð, unnið í leir, Heimasíðugerð og Taktu betri myndir.
Nemendur í 7. og 8. bekk verða í sex svokölluðum smiðjutímum á viku. Hver smiðja stendur í 8 – 9 vikur og komast nemendur því í fjórar smiðjur yfir veturinn. Í boði verða heimilisfræði, leiklist, myndmennt, smíðar, textílmennt og tölvur.
Valhópar í 7. – 10. bekk hafa síðan einn 60 mínútna tími í viku þar sem nemendum er blandað saman þvert á árganga. Valtímabilin verða fjögur, tvö fyrir áramót og tvö eftir áramót. Í valhópum verður boðið upp á eftirfarandi: Myndmennt/kol og málverk, Myndmennt/gifs, Myndmennt/glermálun, Textíl/föndur og fleira, Hárgreiðsla, Körfugerð, Heimavinna, Stærðfræði, Val fyrir hugmyndaflugsmenn/nýsköpun, Verklegar tilraunir í náttúrufræði og stjörnuskoðun, Freestyle, Boltaval, Skólahreysti, Jóga, Matreiðsla, Útimatreiðsla, Útivist, Söngvakeppni, Söngur og gleði, Kvikmyndagerð, Ljósmyndun, Skák og Tónlistarskólinn (einungis í boði fyrir 10. bekk fyrir áramót en bæði 9. og 10. bekk eftir áramót). Einnig er boðið upp á Legó – Legókeppnin, eingöngu ætlað fyrir 7. bekk.



