Hreinn bær og sól skein í heiði
Í dag var okkar árlegi hreinsunardagur sem haldinn er í samstarfi við sveitarfélagið. Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við okkur þar sem hita met var slegið. Bænum var skipt niður á árganga sem fóru um og týndu rusl . Starfsfólk skólans er sammála um að bærinn hafi aldrei áður verið svona hreinn og lítið um rusl og telja margir að það megi rekja til þess að Björn Jónsson í áhaldahúsinu hefur unnið ötullega að því í vetur að halda bænum hreinum. Eftir að búið var að fara um bæinn var farið upp í skóla þar sem pylsur voru grillaðar ofan í mannskapinn. Efir það var farið í leiki en búið var að setja upp stöðvar og gátu nemendur valið sér hvað þeir vildu taka sér fyrir henndur..



