Hafið bláa hafið
Allir velkomnir
Fimmtudaginn 22. mars verður árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar haldin í íþróttahúsinu. Árshátíðin sem ber heitið Hafið bláa hafið hefst kl 17:00 og húsið opnar kl 16:15. Aðgangseyrir er kr 500 en þó aldrei meira en kr 1000 á fjölskyldu. Ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda. Allir velkomnir.
Undirbúningurinn er enn á fullu og er framleiðslan mikil hjá skreytingarbekkjunum en þar hefur pensillinn verið á lofti í all nokkurn tíma. Aðrir æfa skemmtiatriðin, nokkrir hafa staðið í bakstri og svo þarf vinnufúsar hendur til að undirbúa sjálfan árshátíðarsalinn. Það má segja að nú sé að störfum með fjölmennari árshátíðarnefndum en vel á fjórðahundrað manns koma að hátíðinni.



