Bakað, skreytt, sungið og spilað
Undirbúningur fyrir árshátíð skólans er nú í fullum gangi. Allir árgangar sem eru í heimilsfræði -smiðju er búnir að baka fyrir stóra daginn en boðið verður upp á kökur, kaffi og djús eins og áður. 2. og 4.bekkur sjá um að búa til skreytingar í samræmi við þemað sem að þessu sinni er hafið. 6. bekkur er að undirbúa sýningu á verkefni sem þau hafa verið að vinna að undanförnu en það heitir einnig Hafið og verður sýningin sett upp í íþróttahúsinu fyrir árshátíðina. 8. bekkur sér um veitingarnar á hátíðinni en aðrir bekkir sjá um skemmtiatriðin og er óhætt að segja að nóg sé að gera við æfingar. Eftir skóla á þriðjudag fáum við svo íþróttahúsið afhent og þá hefst vinna við að setja upp draperingarnar, sviðið og hljóðkerfið það er því í mörgu að snúast þessa dagana í grunnskólanum.



