Páskaungar í heimsókn
Í dag fengum við góða gesti í skólann en Alla Fanney kom með hænuunga úr Grænahrauni til að sýna okkur. Ungarnir vöktu að vonum mikla lukku og viljum við þakka henni kærlega fyrir þess heimsókn. Í leiðinni viljum við í Grunnskólanum hvetja þá sem hafa eitthvað skemmtilegt og fræðandi að sýna okkur að koma í heimsókn.



