Hátíðardagskrá í boði 5. M
Miðvikudaginn 14. mars var vikuhátíð hjá 5. M í Grunnskóla Hornafjarðar. Í boði var mjög metnaðarfull dagskrá sem var í höndum bekkjarins.
Frumflutt var leikritið Eigi fellur tré við fyrsta högg sem fjallaði um stelpuna Tótu sem lendir í erfiðleikum en málin leysast með hjálp álfsins Aþenu.
Höfundar handrits voru stelpurnar í 5. M. Áheyrendur fengu að heyra brandara, sjá töfrabrögð og frumsamin dansverk. Í lokum kom bekkjarbandið Græna vespan fram opinberlega við mikinn fögnuð áhorfenda.
Það er ekki hægt að segja annað að skemmtunin hafi tekist vel og gestir sýningarinnar skemmt sér vel.



