Skíðaferð 6. bekkjar
Fimmtudaginn 1. mars lögðum við af stað frá Hornafirði um kl. 8:30 og komum í Oddsskarð rétt fyrir hádegi. Það var sól og blíða sem tók á móti okkur í skarðinu og var mikil tilhlökkun í hópnum að drífa sig af stað í brekkurnar. Allir byrjuðu í barnabrekkunni og síðan færðu þeir sem voru reyndari sig yfir í stóru brekkuna. Krakkarnir máttu varla vera að því að fá sér nesti svo mikill var hugurinn í að nota góða veðrið og tækifærið til að skíða. Með slæma veðurspá í kortunum fyrir föstudaginn var skíðað eins lengi fram eftir degi og mögulegt var og við rétt náðum í sundlaugina á Neskaupsstað fyrir lokun. Að sundlaugarferðinni lokinni var síðan pítsuveisla á gistiheimilinu þar sem við gistum. Um nóttina byrjaði að vinda og rigna og um morguninn var ljóst að við gætum ekki farið á skíði svo það var tekin ákvörðun um að fara beint á Stöðvarfjörð á steinasafnið hennar Petru. Þar borðuðum við nesti og héldum síðan heim á leið.
Um leið og við þökkum krökkunum í 6. bekk fyrir frábæra ferð viljum við þakka Huldu Laxdal, Ásgeiri, Ingólfi Guðna, Sindra og Fanneyju fyrir að gefa sér tíma til að fara með okkur og bílstjórunum Ingólfi og Skarphéðni.
Ragnhildur og Rósa
umsjónarkennarar í 6. bekk



