1 bekkur stígur á svið
Síðasta fimmtudag lukum við skóladeginum með því að fara í Sindarbæ og horfa á vikuhátíð 1. bekkjar. Nemendur bekkjarins voru búnir að setja saman heilmikla dagskrá sem þeir fluttu fyrir okkur. Sagðir voru brandarar, sungið, dansaður frumsaminn dans og "breakað". Hátíðinni lauk síðan með stórkostlegri tískusýningu.



