Vikuhátíð hjá 2. bekk
2. S sá um vikuhátíð nú á dögunum. Krakkarnir sögðu brandara, sungu og svo voru lagðar fyrir gátur en þeir fengu Helgu sem er stuðningsfulltrúi í skólanum til að sitja fyrir svörum. Það má segja að gáturnar voru nokkuð flóknar og ekki alltaf auðvelt að koma auga á hið augljósa svar en Helga stóð sig með stakri prýði. Hátíðin endaði að sjálfsögðu á hinu sívinsæla atriði, tískusýningu og eins og svo oft áður var tekin fyrir tíska sem hentar öllum.



