Í fljúgandi góðum félagsskap í skólanum
Á vinadegi í skólanum unnu nemendur þvert á bekki í öllum krókum og kimum skólans. Viðfangsefni vinahópanna var að búa til flugdreka og gekk það glimrandi vel þar til átti að láta þá fljúga. Þá var komið logn en það var svo sem allt í lagi því nú geta vinahóparnir hist aftur til að láta flugdrekana fljúga. Nemendur stóðu sig með afbrigðum vel og voru 72 flugdrekar afrakstur dagsins þar sem markmiðið var að kynnast og vera vinaleg hvert við annað. Það verður spennandi þegar hægt verður að fara út og láta flugdrekana fljúga.



