Kötturinn sleginn úr tunnunni og marserað á öskudaginn.
Við höldum áfram að segja frá því sem við höfum fyrir stafni á öskudaginn. Samkvæmt hefð er kötturinn sleginn úr tunnunni.
Í það verk eru notuð bæði ekta síldartunnur úr við og pappakassar. Hver bekkur hefur sína tunnu til að slá í. Þetta er heljarinnar fjör og oft mikil átök. Eftir tunnufjörið er hæfileikakeppnin en að henni lokinni er marserað og farið í ásadans. Að þessu sinni var bæði marserað í íþróttahúsinu og upp í Hafnarskóla.



