Handboltamóti lokið, 9.N. meistarar
Í dag var leikið til úrslita á handboltamóti sem staðið hefur yfir í nokkurn tíma í skólanum. Í úrslitaleiknum áttust við lið 9.N. og lið kennara. Viðureignin var gífurlega spennandi en þó voru kennarar með undirtökin framan af en náðu samt aldrei að slíta lið 9.N. frá sér. Með miklu harðfylgi náðu leikmenn 9.N. að jafna leikinn og varð því að grípa til framlengingar. Strax í upphafi framlengingar var ljóst hvert stefndi og áttu leikmenn 9.N. ekki í teljandi vandræðum með að klára þá rimmu. Handboltamótið hefur sett skemmtilegan svip á skólabraginn undanfarnar vikur og vonandi verður svona mót árlegur viðburður.



