Þorrablót
Þorrablót nemenda í 8. – 10. bekk var haldið í Sindrabæ fyrstu vikuna í febrúar. Það voru
nemendur í 10. bekk sem sáu um skemmtiatriðin sem voru svo vægt sé til orða tekið „frábær“. Skemmtiatriðin fjölluðu að mestu um kennara og var greinilegt að hópurinn hafði lagt mikla vinnu í að gera þau sem best úr garði. Einnig var minni karla og kvenna flutt og var það gert með glæsibrag eins og allt annað hjá krökkunum þetta kvöld. Kvöldið endaði síðan með dansleik við taktfasta tóna plötusnúðum kvöldsins.



