Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í dag er sérfræðingur frá umboðsmanni barna í heimsókn hjá okkur. Hann verður með erindi fyrir foreldra í fyrilestrarsal Nýheima kl. 17:00 við hvetjum alla sem geta til að mæta. Nemendur og starfsfólk skólans munu hitta hann í dag á skólatíma.
Lesa meira
Á vinadegi í skólanum unnu nemendur þvert á bekki í öllum krókum og kimum skólans. Viðfangsefni vinahópanna var að búa til flugdreka og gekk það glimrandi vel þar til átti að láta þá fljúga. Þá var komið logn en það var svo sem allt í lagi því nú geta vinahóparnir hist aftur til að láta flugdrekana fljúga. Nemendur stóðu sig með afbrigðum vel og voru 72 flugdrekar afrakstur dagsins þar sem markmiðið var að kynnast og vera vinaleg hvert við annað. Það verður spennandi þegar hægt verður að fara út og láta flugdrekana fljúga.
Lesa meiraÁ morgun, þriðjudag er vinadagur í skólanum þá vinnum við í hópum þvert á aldur.
Þá er lokið skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar en hún fór fram í Nýheimum á mánudagsmorgun.
23. febrúar byrjuðu nemendur í 10. bekk í starfskynningum og munu þær standa fram undir miðjan maí.
Við höldum áfram að segja frá því sem við höfum fyrir stafni á öskudaginn. Samkvæmt hefð er kötturinn sleginn úr tunnunni. Í það verk eru notuð bæði ekta síldartunnur úr við og pappakassar.
Á öskudaginn förum við í íþróttahúsið og gerum okkur ýmislegt til gamans. Einn liðurinn er t.d hæfileikakeppni en þá koma nemendur fram og sýna hæfileika sína í leik, dansi, söng og hljóðfæraleik svo eitthvað sé nefnt.
Mikið var um að vera í skólanum á öskudag. Sitthvor dagskráin var fyrir yngra og eldra stig en á báðum stigum skemmtu nemendur sér stór vel.
Á þriðjudaginn var bekkjarkeppni stóru upplestrarkeppninnar. Tólf nemendur komust áfram og keppa þeir aftur næsta mánudag.
Lesa meira
Nýtt form hefur verið tekið upp á svokölluðum vorskóla sem hugsað hefur verið sem aðlögun leikskólabarna að grunnskóladvöl sinni.
Lesa meira
Í síðustu viku var dregið í slökkviliðsgetraun sem börnin í 3. HS tóku þátt í fyrir jól.
Lesa meira
4. bekkur er að byrja á námsefni sem heitir Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti en þar er fjallað um líf og störf fólks á Íslandi fyrr á öldum.
Lesa meira
Í gærkvöldi frumsýndi leikhópur Grunnskólans leikritið Viltu vera vinur minn á Facebook eftir Önnu Brynju Baldursdóttur í leikstjórn Kristínar Gestsdóttur. Leikritið er sýnt í Sindrabæ og er næsta sýning í kvöld þriðjudag kl. 20:00. Sýningin stendur í rúmar 30 mínútur og það kostar 500 kr inn á sýninguna.
Lesa meira
Þorrablót nemenda í 8. – 10. bekk var haldið í Sindrabæ fyrstu vikuna í febrúar. Það voru nemendur í 10. bekk sem sáu um skemmtiatriðin sem voru svo vægt sé til orða tekið „frábær“. Skemmtiatriðin fjölluðu að mestu um kennara og var greinilegt að hópurinn hafði lagt mikla vinnu í að gera þau sem best úr garði. Einnig var minni karla og kvenna flutt og var það gert með glæsibrag eins og allt annað hjá krökkunum þetta kvöld.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember