Annarskil í Grunnskóla Hornafjarðar
Nú er komið að annarskilum. Vetrarönn að ljúka og vorönn tekur við. Föstudaginn 3. febrúar er viðtalsdagur þar sem nemendur ásamt foreldrum mæta í viðtal við umsjónarkennara.Öll viðtölin fara fram í Hafnarskóla. Foreldrar og nemendur undirbúa sig fyrir viðtalið með því að gera leiðsagnarmatið á mentor.is saman heima. Við biðjum foreldra einnig að taka þátt í foreldrakönnun sem er hluti af lögbundnu sjálfsmati skólans en það er gert í tölvum í skólanum. Mánudaginn 6. febrúar er starfsdagur og því frí hjá nemendum.



