Fréttir Grunnskóli
Verkefni um Mose i 4. bekk
Verkefni um Mose i 4. bekk
Selma, Vigdís, Birna, Senida og Björk
Mynd 15 af 15
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15

Foreldrar í hádegisheimsókn

23.01.2012

Á föstudaginn var buðu nemendur fjórða bekkjar foreldrum sínum og ömmum í heimsókn í skólann. Tilefnið var lok verkefnisins um Móse og ferð hans með þjóð sína yfir eyðimörkina til fyrirheitna landsins. Undanfarnar vikur hafa nemendur unnið að verkefninu með þeim hætti að fyrst voru sögurnar um Móse lesnar, næst drógu nemendur myndir úr Biblíum upp á glærur sem var síðan varpað upp á stóran pappír á veggnum. Myndirnar voru dregnar upp og síðan málaðar. Nemendur skiptu sögunum  á milli sín og gerðu úr þeim útdrátt sem þeir síðan myndskreyttu. Og eins og fyrr segir þá lauk þessu verkefni með því  að bjóða foreldrum í heimsókn, segja þeim sögurnar og sýna myndirnar.  Takk fyrir komuna.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica