Fréttir Grunnskóli
Bondadagurinn 2012
Bondadagurinn 2012
Strákarnir í 10. bekk létu sig ekki vanta
Mynd 5 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

Bóndadagur í skólanum

20.01.2012


Í Grunnskóla Hornafjarðar hefur lengi verið við lýði sá siður að drengirnir hlaupa hringinn í kringum skólann með annan fótinn í buxnaskálminni. Þetta þykir afar spennandi, sérstaklega á yngra stiginu en þeir eldri eru einnig duglegir að taka þátt. Stelpurnar taka þátt með því að hvetja strákana óspart áfram.

Um þennan sið segir á vísindavef Háskóla Íslands: "Engin önnur dæmi hafa fundist um þennan sið. Fólki þótti frásögnin í þjóðsögunum hinsvegar svo spaugileg að menn hafa viljað trúa henni. Orðrétt segir þar:

Þess vegna var það skylda bænda 'að fagna þorra' eða 'bjóða honum í garð' með því að þeir áttu að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa.

Vera má að einhverjir hafi gert það að gamni sínu á síðustu öld að apa þennan leikaraskap eftir hinni skálduðu frásögn en um það eru ekki heldur neinar tiltækar heimildir.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica