Handbolti í Heppuskóla
Á sama tíma og „strákarnir okkar“ keppa á EM halda nemendur í Heppuskóla handboltamót þar sem keppt er í tveim riðlum. Það er nemendafélagið sem stendur fyrir þessu móti sem haldið er í fyrstu frímínútum hvers dags.
Allir bekkir nema 10. bekkur eru tvískiptir og til að fylla upp í átta liða mót skipa kennarar eitt liðið. Í því liði eru gamlar handboltakempur sem fáu eða engu hafa gleymt. Riðlakeppni lýkur þann 8. febrúar með stórleik á milli 9.N. og kennara.



