Skák
Eitt af því sem boðið hefur verið upp á í vali nemenda er skák. Sigurður Örn Hannesson hefur séð um að uppfræða krakkana um töfra skáklistarinnar og hver veit nema að skáksnillingar framtíðarinnar séu þarna á ferðinni. Tímabilinu lauk með skákmóti. Sigurvegari var Kristján Vilhelm Gunnarsson, í öðru sæti var Halldór Hrannar Brynjúlfsson og í því þriðja Hjörvar Ingi Hauksson. Áfram verður boðið upp á skák sem valfag í skólanum sem vonandi eflir áhuga nemenda á þessari göfugu íþrótt.



