Fréttir Grunnskóli
syning-i-Sindrabae-og-frimin-015-vef
syning-i-Sindrabae-og-frimin-015-vef
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Söngur og leikrit í Sindrabæ og spil og púsl í frímínútum

15.12.2011

Í gær var sýning í Sindrabæ fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.  Það voru nokkrir samnemendur þeira sem sungu fyrir þá og sýndu leikrit.

Þetta var skemmtileg uppákoma á aðventunni sem einkennst hefur af notaleg heitum í skólanum. Nemendaráð hefur staðið fyrir því að skapa notalegt andrúmsloft í frímínútum með því að hafa púsl og spil á borðum í holinu í Heppuskóla. Jólagetraun hefur verið á hverjum degi, sungið og ýmislegt þar fram eftir götunum. Á milli er svo tekið rækilega á því í náminu. Núna allra síðustu dagana er ein og ein kennslustund tekin undir jólakortagerð, æfingar á leikriti og að skreyta stofurnar. Á morgun föstudag ætla allir að mæta í einhverju sem minnir á jólin og á mánudag er jólabíó eftir hádegi. Þá eru bara stofujólin á þriðjudag og svo jólafrí. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica