Fréttir Grunnskóli
Sveinbjörg og Alex Freyr í GH
Sveinbjorg-og-Alex
Sveinbjörg og Alex heimsóttu 5. - 10. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar og ræddu við nemendur um mikilvægi þess að setja sér markmið í lífinu og að það þyrfti að leggja ýmislegt á sig til að ná þeim.

Góðir gestir í heimsókn hjá okkur í Grunnskóla Hornafjarðar

10.12.2011

Það er gaman að segja frá því að Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Alex Freyr Hilmarsson heimsóttu krakkana í 5. - 10. bekk fimmtudaginn 8. des.

Bæði Sveinbjörg og Alex Freyr eru að gera góða hluti í sínum íþróttagreinum og hafa bæði sett markið hátt. Þau ræddu við krakkana um mikilvægi þess að setja sér markmið og að það þurfi síðan að leggja ýmislegt á sig til að ná þeim. Þau komu t.d. inn á svefn, mataræði og fleiri þætti sem snúa ekki bara að því að ná árangri í íþróttum heldur að ná árangri yfirleitt. Það var virkilega gaman að fá þessa gömlu nemendur í heimsókn og mikilvægt fyrir nemendur okkar að sjá hvað hægt er að ná langt þó maður búi á Hornafirði. 

Nú er þó komið að þeim tímamótum hjá Alex og Sveinbjörgu að þau eru að fara frá Hornafirði enda bæði búin eða u.þ.b. að ljúka stúdentsprófi frá FAS. Alex er að fara til Grindavíkur og spilar þar í úrvalsdeildinni næsta sumar og Sveinbjörg er að fara til stórveldisins FH í frjálsum. Þetta eru flottir fulltrúar ungu kynslóðarinar á Hornafirði og óskum við þeim góðs gengis í framtíðinni. Það er nokkuð ljóst að það verða mörg ungmenni hér sem fylgjast spennt með þeim á framabrautinni. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica