Allir á skauta
Undanfarið hefur verið hagstætt veður til að fara á skauta. Nemendur í grunnskólanum ásamt
kennurum sínum hafa verið dugleg við að sanna snilli sína á skautasvellinu og hafa margir bekkir lagt leið sína á svellið hjá „Hrossó“. Að auki fara síðan margir á skauta þegar skóla líkur, enda svellið fínt og búið er að koma þar upp kösturum þannig að skautafólk getur skemmt sér þrátt fyrir að það dimmi snemma um þessar mundir. Við viljum hvetja jafnt unga sem aldna til að drífa sig út, reima á sig skautana og njóta lífsins.



