3. bekkur í smiðju
Tíminn er svo fljótur að líða og nú erum við hálfnuð í myndmennta- og heimilisfræðismiðjunum og rúmlega það. Börnin hafa staðið sig afskaplega vel og eru dugleg að vinna, vandvirk og taka vel eftir.
Í myndmenntinni erum við búin að ræða um myndbyggingu og mála mynd í kjölfarið, mála blöð og nota í klippimyndir, þar sem við skoðuðum formfræði vel og töluðum um formin. Við höfum verið að vinna pöddumyndir, puttastimpla og byrja á límþrykki. Það gekk allt ljómandi vel og verður haldið áfram með límþrykkið í næstu viku. Margt fleira er á döfinni hjá okkur og meðal annars verður bráðlega unnið með leir og þrykk.
Í heimilisfræðinni höfum við verið að læra um orkugjafana kolvetni, prótein og fitu, og örverur í umhverfinu. Við erum að læra um fæðuflokkana og hvaða næringarefni við fáum úr hverjum flokki. Að sjálfsögðu höfum við líka æft okkur í ýmsu verklegu, bæði hollu og óhollu! Fyrir nokkru fóru 3. bekkingar út í Nettó og gerðu könnun á verðlagi á neysluvörum tengdum nesti. Ákveðið var að útbúa þrjá mismunandi nestispakka sem hver um sig átti að innihalda samloku, drykk, skyr eða jógúrt og einn ávöxt. Það kom mörgum á óvart hve mikill verðmunur var á hinum ýmsu drykkjarvörum og að sama skapi voru börnin hissa á því hvað ávöxturinn í hverjum pakka var dýr – alveg þangað til þau áttuðu sig á því að þau höfðu óvart miðað við kílóverðið en ekki verðið á einum ávexti J
Þessar myndir með: 003 004 005 008 009 010 011 013 016 017 024 025 026 029 030 031 033 035



