Fréttir Grunnskóli
3 bekkur i smiðju
3 bekkur i smiðju
Mynd 13 af 18
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18

3. bekkur í smiðju

02.12.2011

 

Tíminn er svo fljótur að líða og nú erum við hálfnuð í myndmennta- og heimilisfræðismiðjunum  og rúmlega það.  Börnin hafa staðið sig afskaplega vel og eru dugleg að vinna, vandvirk og taka vel eftir.

Í myndmenntinni erum við búin að ræða um myndbyggingu og mála mynd í kjölfarið, mála blöð og nota í klippimyndir, þar sem við skoðuðum formfræði vel og töluðum um formin.  Við höfum  verið að vinna pöddumyndir, puttastimpla og byrja á límþrykki.  Það gekk allt ljómandi vel og verður haldið áfram með límþrykkið í næstu viku. Margt fleira er á döfinni hjá okkur og meðal annars verður bráðlega unnið með leir og þrykk.

Í heimilisfræðinni höfum við verið að læra um orkugjafana kolvetni, prótein og fitu, og örverur í umhverfinu. Við erum að læra um fæðuflokkana  og hvaða næringarefni við fáum úr hverjum flokki. Að sjálfsögðu höfum við líka æft okkur í ýmsu verklegu, bæði hollu og óhollu!  Fyrir nokkru fóru 3. bekkingar  út í Nettó og gerðu könnun á verðlagi á neysluvörum tengdum nesti. Ákveðið var að útbúa þrjá mismunandi nestispakka sem hver um sig átti að innihalda samloku, drykk, skyr eða jógúrt  og einn ávöxt.  Það kom mörgum á óvart  hve mikill verðmunur var á hinum ýmsu drykkjarvörum og að sama skapi voru börnin hissa á því hvað ávöxturinn í hverjum pakka var dýr – alveg þangað til þau  áttuðu sig á því að þau höfðu óvart miðað við kílóverðið en ekki verðið á einum ávexti 
J

 

Þessar myndir með: 003   004   005   008   009  010   011   013   016   017   024   025   026   029   030   031   033   035

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica