Hljóðkerfi í skólann
Á dögunum færðu félagar í Lionsklúbbi Hornafjarðar ásamt foreldrafélagi skólans, skólanum að gjöf forláta hljóðkerfi ásamt hljóðnemum. Hljóðkerfið er nett og þægilegt að koma því upp þegar á þarf að halda. Við afhendinguna fluttu nemendur skólans nokkur lög við góðar undirtektir. Grunnskóli Hornafjarðar þakkar kærlega fyrir glæsilega og gagnlega gjöf.



