Skrímsli og furðuverur
Skrímsli hafa sést á ferðinni í myndmenntastofunni. Eitt skrímslið var klætt bláum kufli og var með rauð grimmdarleg augu.
Einnig sáust nokkrar furðuverur á gangi inn í Hafnarskóla sama dag. Ekki er vitað hvaðan þessar verur koma en nokkrir nemendur í sjötta bekk hafa verið ráðnir til þess að fletta ofan af þessu dularfulla máli. Reyndin er nú samt sú að þetta eru nemendur í 6. bekk og hafa þau unnið þessar grímur í myndmenntartímum.



