Kaffihúsakvöld
Nemendur í 10. bekk héldu kaffihúsakvöld þar sem þau sýndu foreldrum sínum afrakstur vinnu sinnar um Lónsöræfaferðina sem farin var í lok september.
Góð mæting var á kaffihúsakvöldið og svignuðu borðin undan gómsætu bakkelsi. Kaffihúsastjórar kvöldsins sáu um að kynna dagskrána og voru með myndasýningu úr ferðinni. Nemendur voru búnir að vinna heimildarritgerð sem skiptist í fimm kafla sem fjölluðu um: Byggð í Lónsöræfum, gróður og dýralíf á hálendi Íslands, jarðfræði, friðlýst svæði og umhverfisvernd og þjóðgararða. Fyrir kaffihúsakvöldið voru þau búin að útbúa kynningarefni um þessi atriði. Kynningarnar voru á veggspjöldum, einnig bjuggu þau til tvö borðspil og gáfu út fréttablað sem samanstóð af ýmsum fróðleik um Lónsöræfi og þar var einnig að finna viðtöl við nokkra aðila sem fóru í þessa ferð. Nemendur voru langflestir mjög ánægðir með þessa ferð og hér koma nokkrar tilvitnanir úr ritunarverkefnum þeirra þar sem þau áttu að segja frá upplifun sinni úr ferðinni:
,,Lónsöræfaferðin var ótrúlega skemmtileg, mér fannst mjög gaman að labba upp fjöllin og sjá allt
flotta umhverfið, svo var líka mjög gaman að hlaupa niður skriðurnar. Ég veit að ég á eftir að fara þangað aftur.”
,,Gönguferðin sem við fórum í eftir að við vorum búin að skila stóru bakpokunum í skálann, var meira uppí mótið en Berglind sagði, en það var skemmtilegt að hlaupa niður skriðuna. “
,,Daginn eftir fórum við svo í langa göngu sem tók ekki nema átta klukkutíma. Hún var soldið erfið en samt skemmtileg. Það var allt of mikið upp og ekki nóg af niður. “
,,Það var einnig svo lítil upplifun fyrir sig að þurfa að fara út í svarta myrkri til þess að fara á klósettið og tannbursta. “
,,Mér fannst geðveikt gaman þegar við lögðum að stað. Þegar við vorum komin þá fannst mér ég vera komin í helviti á jörðu maður var að drepast þegar maður var bara að labba uppí kofa. “



