Fréttir Grunnskóli
veb-vinab6
veb-vinab6
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

Vinabekkir

24.11.2011

Í tilefni af vinavikunni hafa ákveðnir bekkir tengst sem vinabekkir. Í dag heimsóttu t.d. nemendur í 2. bekk vinabekk sinn sem er 7. bekkur. Krakkarnir föndruðu saman, þar sem þau eldri aðstoðuðu yngri krakkana, eða öfugt. Einnig var gripið í spil ásamt því að spjalla saman. Þessi heimsókn
tókst í allastaði mjög vel og færði þessa tvo aldurshópa örugglega nær hvor öðrum. Vinavikan hefur verið skemmtilegt innlegg í skólastarfið og veitir nemendum tækifæri á að kynnast og vinna með hvert öðru, þvert á aldur.

„Vinátta byggist á því að gleyma því sem maður hefur gefið og muna hvað maður hefur fengið“ (Alexander Dumas).



Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica