Fréttir Grunnskóli
Grunnskóli Hornafjarðar 2011
vinavika-063-vef
Mynd 11 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

Draumaskólinn minn

verkefni í vinaviku í Grunnskóla Hornafjarðar

22.11.2011

Þriðjudagurinn 22. nóvember hófst með óvenjulegu sniði í Grunnskóla Hornafjarðar því nýir bekkir (hópar) höfðu þá verið búnir til þvert á árganga. Unnu þessir hópar saman fram eftir morgni og var eitt af verkefnunum DRAUMASKÓLINN MINN. Verkefnið er hluti af vinnu í vinaviku í skólanum og er afraksturinn til sýnis á Menningarmiðstöðinni.

Markmiðið með vinnunni var tvennskonar.  Að blanda nemendum saman og ýta undir samkennd og vináttu meðal þeirra en einnig að leyfa nemendum að koma hugmyndum sínum um draumaskólann á framfæri.

Eins og sjá má á verkefnum nemenda er draumaskóli þeirra margvíslegur og sumt langt frá því sem við þekkjum í dag.

Hugmyndirnar snúast þó í flestum tilfellum um að  uppfylla einhverjar þarfir hjá einstakling eða hóp og því er mikilvægt að velta fyrir sér hvaða þarfir liggja að baki hugmyndunum.

 Mikilvægt er að komið sé til móts við þarfir allra í skólanum og þó að það sé ekki hægt ákkúrat á þann veg sem fram kemur á plakötunum þá er oftast hægt að finna einhverja leið til að koma til móts við þarfir nemenda. 

Grunnþarfir okkar er hægt að flokka í fimm flokka. Fjórir flokkar eru tilfinningalegs eðlis en sá fimmti líkamlegs. Það er þörfin fyrir öryggi og örugga lífsafkomu. Öryggisþörfin er svo mikilvæg að hinar víkja í raun sé henni ógnað. 

Þegar unnið hefur verið með öryggisþörfina er hægt að vinna með hinar tilfinningalegu þarfir. Þeim er skipt í fjóra flokka:

a)    umhyggja;  þörfin fyrir að tilheyra t.d. að eiga vini og fjölskyldu, að elska og vera elskaður

b)   frelsi; þörfin fyrir valfrelsi og sjálfstæði, það að hafa ákveðið svigrúm og frelsi til að velja fyrir sjálfan sig.

c)    áhrif;  þörfin fyrir að hafa áhrif og ná árangri, ráða og ráða við. Að hafa stjórn á lífi sínu.

d)   ánægja; þörfin fyrir gleði og ánægju felst fyrst og fremst í því að hafa gaman og segja má að þetta sé líka summa hinna þriggja, þ.e. takist manni að uppfylla þarfirnar fyrir umhyggju, frelsi og áhrif, fyllist maður gleði. 

 

Allir hafa allar þessar fjórar þarfir en þær eru misjafnlega ríkar hjá hverjum og einum. Það er mikilvægt fyrir alla að læra að þekkja þarfir sínar svo þeir geti uppfyllt þær á jákvæðan hátt án þess að ganga á rétt annarra.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica